Samherji lokar aðeins í 5 vikur í sumar ?

Nú langar mig að vita hvort rétt sé að Samherji loki aðeins í 5 vikur í sumar.
Á mjög dramatískan hátt tilkynnti Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja það á fundi í vor að það yrði að loka hjá Samherja á Dalvík í átta vikur í sumar vegna strandveiðanna.LÍÚ var með upphrópanir vegna þessa máls þar sem þeir ætluðust til þess að fá samúð frá okkur hinum.Það reyndar klikkaði eitthvað hjá þeim vegna þess að samúðina fengu þeir ekki .En bíddu við í síðustu viku barst mér það til eyrna að það yrði aðeins lokað í fimm vikur á Dalvík .Er það rétt ?
Hef ekki séð neinar upphrópanir hvorki frá Samherja eða LÍÚ vegna þessara ánægjulegu frétta.Er það vegna þess að þeir vilja ekki láta það fréttast og vegna þess að þeir voru að nota Samherja í vor gegn strandveiðunum?
En í staðinn koma stórfréttir frá þeim um að Samherji ætli að borga starfsmönnum sínum 60 þúsund krónur aukalega í orlofsuppbót.JÁ ÞAÐ VORU GÓÐAR FRÉTTIR fyrir þá og kom þeim vel að birta það með upphrópunum .
Fólk er löngu búið að átta sig á þessum leik Samherja og LÍÚ.EN þeir eru ekki farnir að átta sig á því sjálfir að fólk er ekki fífl.

Mælirinn fullur !!!!!

Aldrei datt mér í hug að ég færi að blogg hér.EN mér er gjörsamlega misboðið núna og get ekki orða bundist.Ég var að lesa ræðu sem Þorsteinn Már Baldvinsson fór með á árshátíð Samherja .Guð minn góður hvað maðurinn er veruleikafyrrtur.Ég fæ æluna upp í háls.Hann talar um að stjórnendur þurfi að gæta hagsmuna starfsmanna sinna og spyrna við fótum þegar að þeim er sótt og störfum þeirra.Hvað er þessi maður búin að gera út um allt land?Það er ekkert launungamál að ég kem frá Stöðvarfirði þar sem þessi maður lagði nánast allt í rúst á einni nóttu ,og hafi hann skömm fyrir.Hann talar um að fyrning á aflaheimildum sé ekkert annað en tilflutningur á fjármunum.HVað er hann sjálfur búin að stunda gegn um árin ?Búin að fara um landið eins og þjófur að nóttu.Voru það ekki tilflutningur á fjármunum eða hvað kallar hann það þegar það snýr að honum?Þarna réðist hann að atvinnu Stöðfirðinga og eigum.Já eigum segi ég vegna þess að með þessum aðgerðum sínum sat fólk upp með enga atvinnu og verðlaus hús þar sem ekert var hægt að selja þar sem enga atvinnu er að fá.Hann var svo ómerkilegur þegar hann var að koma þessu ráni í gegn að hann lagðist ekki svo lágt að koma og tala við STARFSFÓLKIÐ SITT sem hann bar svo mikla virðingu fyrir ,heldur sendi skilaboðaskjóðu.Já takk fólkið á Stöðvarfirði gæti bara farið að vinna í álverinu á Reyðarfirði ,það væri hvort sem er búið að opna göngin .En hvað með konurnar sem voru STARFSMENN HANS (og hann ber svo mikla virðingu fyrir)og voru með lítil börn á leikskóla og barnaskóla.Attu þær bara að skilja börnin sín eftir og fara a Reyðarfjörð ?Þar að auki lofaði hann öllu fögru,ætlaði að setja 20 milljónir í atvinnuuppbyggingu,en ónei það var alveg sama hvað fólk ætlaði að gera til að koma með einhverja atvinnu ,það var aldrei það sem hann vildi styrkja.Svo þessir peningar komu aldrei.Ég vil benda fólki á að þessi maður hugsar bara um rassgatið á sjálfum sér g engum öðrum.Eg tel að LÍÚ sé að nota Samherja til að koma sínum málum fram.Þessi LÍÚ mafía er stórhættuleg og gerir hvað sem er til að fá sitt fram og þar er Mái fremstur í flokki.Svo kemur hann annað slagið með dúsu til að stinga upp í STARFSFÓLKIÐ SITT(sem hann ber svo mikla virðingu fyrir).130 þúsund í jólabónus og tertu hér og tertur þar.Og þá lofa hann allir og dýrka.Þvílíkur þefur sem er af þessu.Hver Hver átti að standa vörð um starfsemi og atvinnuöryggi okkar Stöðfirðinga sem vorum hans starfsmenn (sem hann ber svo mikla virðingu fyrir )?

Um bloggið

Hólmfríður S Einarsdóttir

Höfundur

Hólmfríður S Einarsdóttir
Hólmfríður S Einarsdóttir
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...su100_jpg_1
  • ...afell_su100

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband